OFBELDI Á ÍSLANDI
Á MANNAMÁLI
Eitt hljóðlátasta samfélagsmein okkar tíma er kynbundið ofbeldi. Út er komin ný bók sem á einstakan hátt varpar ljósi á ólíðandi ástand, Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.

Kynferðisbrot kosta samfélagið á annan milljarð á hverju ári auk þess langvarandi sársauka og skaða sem brotaþolarnir glíma við, jafnvel allt sitt líf. Umfang þessara brota er gífurlegt. Samkvæmt niðurstöðum íslenskrar rannsóknar má ætla að fimmta hver stúlka á Íslandi sé misnotuð fyrir 18 ára aldur og tíundi hver drengur. Fæstir brotamannanna gjalda þó fyrir verk sín. Að sama skapi eru talsvert fleiri Íslendingar beittir kynferðisofbeldi á fullorðinsárum en í nágrannalöndum okkar.

Á undanförnum árum hafa þær raddir orðið sífellt háværari í samfélaginu að rétta verði hlut þolenda kynferðisbrota innan íslenska dómskerfisins og þar er m.a. barist fyrir þyngri refsingum og sanngjarnari málsmeðferð. Þórdís Elva fjallar af einurð um afbrotin, umræðuna, dómskerfið og ekki síst staðreyndirnar – á hátt sem allir skilja. Í bókinni eru sögur af sigrum og ósigrum, þar er vitnað til á sjöunda tug núlifandi Íslendinga; til dómara, hjúkrunarfræðinga, barna, þingmanna, lögfræðinga, sálfræðinga, kennara, brotaþola og blaðamanna en í samhljómi þeirra kristallast skýrt: Við verðum að gera betur.

Svona bók hefur aldrei komið út áður hérlendis. Þórdís Elva safnar saman gífurlegu magni upplýsinga sem ekki liggur á lausu – og hún veltir við hverjum steini í leit að leiðum, von og framtíðarsýn. Bókin hennar Á mannamáli er mikilvægt lóð á vogarskálarnar og sönnun þess að við getum breytt umræðunni, lögunum og bætt hlutskipti brotaþola á Íslandi.

Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2009.

„Það er sannarlega fagnaðarefni að bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á mannamáli: ofbeldi á Íslandi, brotin, dómarnir, aðgerðirnar og umræðan, skuli hafa hlotið tilnefningu til Íslensku bókmennaverðlaunanna þetta ár, … og það er mikilvægt að sem flestir lesi þessa bók. Sér í lagi allir þeir sem vinna í tengslum við íslenska dóms- og réttarkerfið. … Þórdís er afskaplega ritfær kona og hún leikur sér með tölur og samanburðarfræði sem afhjúpa á grímulausan hátt sinnuleysi samfélagsins gagnvart kynferðisafbrotum. Þrátt fyrir grafalvarlegt viðfangsefni er stutt í beittan húmor – og þannig dregur hún lesendann áfram um skuggalönd ofbeldisheima. Ég viðurkenni fúslega að á þeirri ótrúlegu vegferð dó tiltrú mín á íslenskt dómskerfi.“
Þorgerður H. Þorvaldsdóttir / kistan.is

„Vonandi verður bókin víða lesin og rædd í stórum og smáum hópum og um samfélagið allt. Ekki veitir af … Það var með kvíðahnút í maganum sem lesturinn hófst. Það var alger óþarfi þó vissulega spili lesturinn á tilfinningar lesanda. … Þessu verki er ætlað að ræða á mannamáli um eitt erfiðasta mein samfélagsins og því tekst það.“
Kristín Ólafs / eyjan.is

„Nauðsynleg lesning öllum sem eiga dóttur, mömmu, frænku eða systur en líka bróður, pabba, son eða frænda … Bók sem á erindi til allra.“
Erla Hlynsdóttir/DV

„… skyldueign fyrir alla sem láta sig samtímann varða.“
Jenný Anna Baldursdóttir – jenfo.blog.is

„… skyldulesning bæði fyrir konur og karla.“
Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins 20. september

„… ætti að vera skyldulestur fyrir alla.”
Nýtt Líf

„Bókin er … einstaklega aðgengileg, vel skrifuð og lifandi… mikilsverð varða á leið okkar til siðaðs samfélags.“
Leiðari Fréttablaðsins 16. september

„Þórdís Elva bendir á margt í bók sinni sem taka þarf til rækilegrar skoðunar.“
Leiðari Morgunblaðsins 16. september

„… löngu tímabært verk.“
Guðríður Haraldsdóttir, Vikan